« Home | Brjálað.... » | Stuð á Þorrablóti » | Ísó skvísó here I come... » | Bara fimm dagar eftir af verknámi í öldrunarhjúkru... » | Árshátíð í kvöld... » | Bara tvö prósent.... » | Ætleiðing.... » | Hún á afmæli í dag... » | Sparidagur » | Karmella... » 

fimmtudagur, mars 11, 2004 

Hvergi óhultur...

Var að lesa á blogginu hennar heiðu #404 að það var keyrt á hana á hjólinu, hún lenti undir bíl með hjólið ofan á sér, en sem betur fer slasaðist hún ekki, liggur bara heima marin og blá... sendi henni góða strauma :)
Vikurnar eru svo fljótar að líða að ég trúi þessu varla, kom heim á mánudagsmorgun eftir að hafa unnið á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Það var rosa fínt, og alltaf er jafn gott að koma "heim".
Fékk meira að segja vinnutilboð og átti íbúð á fylgja með vinnunni, en því miður, er búin að ráða mig á A-7.. hefði samt alveg verið til í að vera, allavegana í sumar, út af ýmsum ástæðum tíhíhí
Sigrún systir kom í bæinn í gær með hele familien, mér hent út af skerjó og þau tóku yfir lyklavöldin á þeim bæ... tók á móti þeim í gærkvöldi og það byrjaði vel því litli sæti bollu frændi minn ældi yfir allt bakið á mér.. er það nú móttökur þegar hann hittir uppáhals frænku... hehe.
Annars er planið á morgun að fara að sjá fimmstelpur.com og kannski að fá sér eitthvað í gogginn áður, svo ætla ÉG að fá mér kannski bjór og fagna því að á morgun klukkan fjögur er ég laus úr greipum skólans. Ég þarf aldrei aftur að mæta í tíma eða verknám... AHHHHH þetta er svo góð tilfinning.
Annars er ég að vinna núna á A-7, er bara að stelast í tölvuna eins og svo oft áður...
Kem svo sterk inn eftir helgi þar sem að álagið fer að minnka (vonandi)
Hugs and kisses