hahaha.... tveir góðir fyrir helgina
Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu
hjón ein að flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf.
Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en
eiginmaðurinn flaug á undan..
Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og
skrifar strax bréf til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann
misritaði einn staf í adressunni og lenti bréfið hjá ekkju einni sem
nýbúinn var að jarðsetja sinn heittelskaða. Ekkjan sem rétt var búin að
jafna sig eftir athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum
þegar bréfið barst......
Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan
tölvuna og þetta stóð ritað á skjáinn:
Til: Konu minnar sem eftir var
Frá: Manninum þínum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað
Elskan,
Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og
gera allt klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð
þín með óþreyju. Ástarkveðjur,
Þinn eiginmaður.
P.S. Fjandi heitt hérna niður frá
Brandari númer tvö:
Kæri Jólasveinn
Hlustaðu nú litli feiti ljóti dvergur.
Ég hef hjálpað þér öll þessi ár og verið besta og fullkomnasta
jólagjöfin , komið fram í misjöfnum veðrum í efnislitlum
gerfibaðfötum og ég get sagt þér það hefur oft verið hræðilega kalt.
Mér finnst leiðinlegt að segja það en jólasveinn ég finn mig ekki í
þessu lengur!!!!!
Nú er kominn tími til að breyta til um þessi jól.
Ef það gerist ekki mun ég sjá til þess að að það verði haldnar
Barbie brennur um allt land ég gæti nú trúað að þér þyki fnykurinn af
þeirri brennu ekki eftirsóknarverður.
Jæja jólasveinn hér er þá óskalistinn í ár.:
Mig langar í:
1. Mjúkar bómullar stuttbuxur, og stóran víðan háskólabol í stíl. Ég er
orðin hundleið á að líta út eins og mella. Er engin takmörk á því hve
baðfötin geta verið lítil og vesældarleg?
Og meðal annarra orða ? veistu hvernig það er að hafa nylonbuxur
með frönskum rennilás inni í rassaborunni .
2. Raunveruleg nærföt sem auðvelt er að fara í. Helst hvít. Hvaða
bölvaður asni ákvað að framleiða þessa nærfataeftirlíkingu sem
festist við húðin á mér þannig að það lítur út fyrir að ég sé með
appelsínuhúð.
3. Svo vil ég fá alvöru KARLMANN ? t.d. Action man. Ég er orðin
svo hundleið á þessum væmna aumingja honum Ken. Og svo er hann kominn
með eyrnalokk ekki skánar hann við það. Ég þjáist að vera nálægt
honum.
Í guðs bænum gætir þú ekki skapað hann líffræðilega rétt og með
tilheyrandi tólum.
4. Ég óska mér að fá handleggi sem ég get beygt svo ég geti ýtt
áðurnefndum Ken-ræfli frá mér þegar búið er að útbúa hann rétt .
5. Ég vil fara í brjóstaMINNKUN mér er alveg sama hvort þú þarft
að snúa upp á handleggi á e-m lækni ? ég vil fara í brjóstaminnkun
6. Íþróttabrjóstahaldara til að nota þangað til ég fer í
brjóstaminnkun.
7. Nýtt starf. Dýralæknir eða kennari er algerlega out. Hvernig
líst þér á að ég verði kerfisfræðingur, verðbréfasali eða vinni við
almannatengsl.
8. Nú verður þú að fara að skapa 2001 karakterinn.
T.d. fyrirtíðaspennu Barbie, fylgihlutir með henni gætu verið
poki með kartöfluflögum, Og lítil askja með súkkulaðibitakökum eða
rjómaís. Nú eða Hættu að reykja Barbie með Nikotín plástri og tyggjó.
9. Að lokum ? það er nú kominn tími til að ég fái að kaupa
hlutabréf í fyrirtækinu (Mattel) Ég er búin að vera hér í 42 ár svo mér
finnst þetta ekki ósanngjörn krafa. Ég meina það Jóli .
Jæja þetta er nú það sem ég fer fram á. Þegar tekið er tillit til
verðmætaskapandi framlags míns til samfélagsins finnst mér þetta
sanngjarnar kröfur. Ef þú gengur ekki að þeim skaltu bara finna þér
einhverja gæru
til að taka við um næstu jól. Svo einfalt er það.
Þín einlæg Barbie.
Góða helgi góðir hálsar
Hrafnhildur