Sundstræti 37...
er núna eign mín og Sigga, fengum lyklana í dag, eða réttara sagt ég fékk lyklana í dag. Siggi er að klippa og eitra á Bíldudal og Patreksfirði þannig að ég fór bara með múttu og sýndi henni húsið. Öllum líst bara vel á þetta en það vantar slatta af málningu, bæði innan og utan, parket og sérstaklega nýtt eldhús... en ég er alveg í skýjunum. Tökum flutningum bara rólega þar sem að leigjandi flytur ekki í Stórholt fyrr en 10. júní en það verður heljarinnar innflutningspartý og verður þeim sem óskað er eftir þangað látnir vita.
Liggaliggalái... ég á hús...
Liggaliggalái... ég á hús...
VEi til hamingju elskan mín!! Hlakka til að koma í partý og rill til ykkkar:-)
Posted by
Halla Maria |
maí 04, 2006
Til hamingju með húsið frænks...
Good luck...
Posted by
Nafnlaus |
maí 04, 2006
hvað er rill?
ég meinti GRILL hehe!!
eina steik fyrir mig takk á fína pallinum ykkar;-)
Posted by
Halla Maria |
maí 04, 2006
Til lukku :)
Hlakka til að máta pallinn í sumar!!
Kv Hanna Rósa
Posted by
Nafnlaus |
maí 04, 2006
Hammó með húsið...
Ég mæti í innflutningspartýið ef það verður eftir 9 júní :)
Posted by
Nafnlaus |
maí 04, 2006
Til hamingju kveðja Elísa
Posted by
Nafnlaus |
maí 04, 2006
Til hamingju enn og aftur. Húsið er æðislegt! Ég á eftir að koma oft og títt í sumar og láta sólina sleika mig á sólpallinum ykkar:)
Posted by
Hafdis Gunn |
maí 05, 2006
Til lukku með húsið. Er gesta og tómstundaherbergi eins og í Stórholtinu?
Posted by
Nafnlaus |
maí 06, 2006
Til hamingju með húsið þitt sæta mín:)!!! Váaa hvað þetta er æðislegt...væri sko alveg til í að koma í heimsókn til þín vestur á firði..það vonandi gerist ef/þegar ég flyt heim;) kossar og knús til þín, kveðja frá Heiðu í Ölpunum hehe;)
Posted by
Nafnlaus |
maí 07, 2006
Hæ hæ, til hamingju með húsið - þetta er ekkert smá fullorðins. Þú verður eiginlega að láta myndir fylgja, kem ekki alveg fyrir mig hvaða hús þetta er. Bestu kveðjur
Posted by
Nafnlaus |
maí 08, 2006
Hæ.. ég er til í innfutningspartý !!! Ef tad verdur í júlí ;)
Knus Harpa systir
Posted by
Nafnlaus |
maí 09, 2006
til hamingju með húsið, ég er nú sammáa Dóru að þú ættir að setja myndir af því á síðuna. svo allir í heiminum rati nú til þín
Posted by
Nafnlaus |
maí 10, 2006