« Home | Hann á afmæli í dag... » | Hún á afmæli í dag... » | Vá hvað þetta blogger dót ætlar að vera leiðinlegt... » | Nýjar myndir á myndasíðunni....Skoðaði aftur prins... » | Tumalína fæddist 11:25 í morgun... án mikillar áre... » | Vestfirðingur ársins.... » | » | 2007 » | Gleðileg jól... » | Kökurnar í ofninum... » 

mánudagur, febrúar 12, 2007 


Úfff það eru 9 vikur eftir.. ekki það að ég sé orðin þreytt heldur er þetta bara svo ótrúlega lengi að líða.
Dreymdi í nótt að við hefðum eignast strák og var þetta nú ekkert mál í draumnum að eignast eitt stykki barn. Aðal efni draumsins var legan á fæðingardeildinni en þar sem að ég var starfsmaður hjá stofnuninna þá þurfti ég ekki eins mikla umönnun. Þurftum að fara út um allt hús að leita að sængum til að sofa með og sængurfötum. Siggi var nú reyndar hjá mér í draumnum þar sem að ég var ein á deildinni (algjör lúxus og vona ég að það verði þannig um miðjan apríl)... ég fékk enga tilsögn eða eftirlit með brjóstagjöf og ég vaknaði eiginlega bara í panik kasti þegar ég áttaði mig á því í draumnum að strákurinn var ekkert búinn að drekka í rúman sólahring....
Fróðar konur hér í vinnunni segja að það boði gott að dreyma sveinbarn og sérstaklega ef það er manns eigið, þannig að þetta á ekki eftir að verða neitt mál (krosslegg fingur).
Krílið dafnar vel og samkvæmt netinu er það nú 30cm og eitt og hálf kíló. Það er alltaf með hiksta, svona 4-5 sinnum á dag, frekar einkennileg tilfinning, svona eins og auka hjartsláttur inni í manni. Annars er allt gott að frétta af okkur, ótrúlega róleg ennþá þannig að það er kannski bara eins gott að tíminn skuli vera svona lengi að líða. Annars erum við bæði bara orðin rosa spennt og hlökkum til að takast á við þetta allt saman :=)

Mig hefur dreymt þrisvar sinnum að ég væri búin að eiga og eins og hjá þér þótti það ekki mikið mál í draumnum hehe;-) Það var strákur í öll skiptin þannig það á að boða eitthvað voða gott. Spurning hvort það rætist ekki bara með kynið það er að segja!

En vildi bara segja að þetta verður fljótara að líða núna og áður en þú veist af er bara vika í settan dag:-) Mér finnst þetta alla vega búið að vera fljótt að líða hjá þér hehe.
Knús á ykkur í Sundstræti.

Mig dreymdi oft að ég væri að fara eiga á meðan ég var ólétt. Í öll skiptin eignaðist ég strák. Kannski eru draumarnir að segja ykkur eitthvað...:)

Eina sem ég veit er að það boðar bara gott að dreyma að meður eigi strák! Þetta á ábyggilega eftir að ganga eins og í sögu hjá þér elskan mín og þetta er alveg ótrúlega fljótt að líða, allvega finnst mér ótrúlega skrýtið að það séu bara 9 vikur eftir hjá þér! Þú átt eftir að standa þig vel. Elska þig dúllan mín

Ég er alveg miður sín.... Ég var að spá í hvort það sé til svona hermir svo ég geti tekið þátt í þessari umræðu með ykkur.... svona óléttu hermir... æ ég veit ekki... Minn tími mun koma... Ég á örugglega eftir að eignast tvíbura!!! just my luck!! jæja. Hlakka til að hitta þig á laugardaginn. Það verður ágætt að slafra úldinn og súran mat svona einusinni. En héddna... hvað er Siggi Gamall? er hann fæddur '76 eða '77? og að lokum til hamingju með kallinn;)

Fæddur 76

Váá mig dreymdi alveg eins draum og þig áður en ég átti Darra Þór. Eignaðist strák í draumnum og fékk panik kast (eftir reyndar nokkra daga) því barnið var ekki enn búið að drekka. Hlýtur að vera eitthvað óléttu-syndrom :) Gangi þér vel. Kv. Arna

Skrifa ummæli